Saga félagsins
Saga Félags íslenskra félagsliða - FÍF Í júní 2002 hófu Bryndís Jónsdóttir og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir undirbúning að stofnun félags fyrir félagsliða. Hinn 4. nóvember 2002 var haldinn undirbúningsfundur vegna fyrirhugaðrar stofnunar fagfélags félagsliða. Kosin var undirbúningsnefnd og í henni sátu: Brandur Gíslason, Bryndís Jónsdóttir, Ingileif Ögmundsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Rakel Þorsteinsdóttir. Boðað var til stofnfundar félagsins 10. apríl 2003. Á fundinum voru samþykkt lög og siðareglur fyrir félagið. Kosin var fimm manna stjórn, tveir varamenn og tveir endurskoðendur. Í fyrstu stjórn félagsins voru þessi kjörin: Formaður Rakel ÞorsteinsdóttirVaraformaður Anna IngvadóttirGjaldkeri Bryndís JónsdóttirRitari Þórdís Ólöf EiríksdóttirMeðstjórnandi Margrét Halldóra HalldórsdóttirVaramaður Brandur GíslasonVaramaður Kolbrún Dögg KristjánsdóttirEndurskoðandi Erla Hrönn Júlíusdóttir
Endurskoðandi Ingileif Ögmundsdóttir
Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Þórdís Ólöf, Bryndís, Anna, Rakel og fyrir miðju Kolbrún Dögg.
Á stjórnarfundi félagsins þann 23. janúar 2004 voru trúnaðarmenn kjörnir, Anna Ingvadóttir, aðaltrúnaðarmaður og Bryndís Jónsdóttir sem varatrúnaðarmaður.
Á aðalfundi félagins 27. apríl 2004 voru eftitalin kjörin í stjórn:
Formaður Rakel Þorsteinsdóttir. Varaformaður Anna Ingvadóttir.
Gjaldkeri Bryndís Jónsdóttir. Ritari Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir.
Meðstjórnandi Guðlaug Guðmundsdóttir
Varamaður Þórdís Ó. Eiríksdóttir og Þórdís R. Malmquist
Þú ert gestur nr. 34988 á vef Félags íslenskra félagsliða síðan 15. janúar 2007.









